Siðareglur GOS
Sem félagi í Golfklúbbi Selfoss ætla ég að:
- Kynna mér og tileinka siðareglur klúbbsins sem og siðareglur UMFS.
- Sýna aldrei af mér kynferðislega áreitni eða ofbeldi eða aðra hegðun sem særir velsæmiskennd annarra.
- Tilkynna brot á siðareglum og alla kynferðislega áreitni eða ofbeldi til forráðamanna klúbbsins í samræmi við viðbragðsáætlun klúbbsins um slík mál.
- Leika af heiðarleika og samkvæmt golfreglum.
- Taka ávallt tillit til annarra kylfinga sem og starfsmanna vallarins og klúbbsins.
- Bera virðingu fyrir hæfileika og getu annarra kylfinga.
- Forðast neikvæð ummæli og hafa ávallt stjórn á skapi mínu.
- Ganga vel um völlinn og allt hans umhverfi og mannvirki.
Sýni allir golfandann í verki verður leikurinn ánægjulegri fyrir alla á vellinum!
Leikreglur GOS
Bera virðingu fyrir meðspilara og golfvellinum.
Skilja við golfvöllinn eins fallegum og þú komst að honum.
Taka upp drasl.
Haga sér eins og dama eða herramaður á vellinum ekki hlaupa eða öskra.
Raka glompur eftir að þú ferð frá þeim.
Laga kylfuför.
Laga boltaför á flötum.
Skilja golfpoka frá gríni á þeim stað sem er næst næsta teig.
Taka ekki æfingahögg á teig svo það komi ekki kylfufar í teiginn.
Standið ávallt á þeim stað sem þið truflið ekki meðspilara.
Standið ávallt andspænis meðspilara þegar hann slær aldrei fyrir aftan viðkomandi.
Aldrei að hreyfa sig þegar annar er að fara slá golfhögg.
Á flöt, aldrei ganga á púttlínu meðspilarana.
Standið aldrei fyrir aftan púttlínu meðspilara þegar viðkomandi púttar.
Takið alltaf kúluna upp úr holunni með höndunum ekki með kylfu.
Leikmaður sem er með lægsta skor á holunni á heiðurinn að slá fyrstur á næsta teig.
Leikmaður sem á kúluna sem er lengur frá holunni slær fyrstur.
Á flöt, leikmaður sem á kúluna sem er næst holu heldur við flaggið.
Leikmaður sem er fyrstur til að klára holuna sér um að setja flaggið í holuna þegar allir eru búnir.
Haldið ykkur á flötinni þangað til að allir eru búnir að klára holuna.
Skrifið á skorkortið á næsta teig.
Hægt spil skal forðast. Haldið í við hollið á undan ykkur. Ef heil braut myndast á milli hleypið þá framúr.
Takið ekki engur en 13 mínútur að klára hverja holu.
Kallið hátt “FORE!” ef kúlan stefnir í átt að einhverjum öðrum.
Þegar þú heyrir “FORE!” snúðu bak í kúluna og beygðu þig niður með höfuð milli fóta.
Takið bara æfingasveiflu þegar aðrir eru fjarri.
Ef þú heyrir eða sérð eldingu, farið af vellinum strax.