Laugardaginn 12.mai er hin árlega vorhreinsun og eftir hádegi er Vormót GOS.
Við hvetjum alla félaga til að mæta og gera völlinn fínan fyrir hið sólríka sumar sem er í vændum.
Helsta verkefni er að ganga um og týna rusl á vellinum.
Mæting er kl 9:45
kl ca 12:00 er síðan súpa og brauð í golfskálnum.
Mótið sjálft helst kl 13:30 og ræst er út á öllum teigum.
Hægt að skrá sig á rástíma til að mótastjóri sjá hverjir vilja vera saman í holli
Spilað er 18 holu punktakeppni.
Þau sem mæta á vinnudag fá frítt í mótið og hádegismat.
Þau sem ekki komast á vinnudag eru að sjálfsögðu velkominn í mótið og greiða 1500 kr mótsgjald.
Verðlaun fyrir 3 efstu sætin.
Með golfkveðju:
Vallarnefnd GOS, starfsmenn GOS og mótanefnd GOS
Categories: Fréttir