
Holukeppni GOS 2020
Mótið fer fram í golfhermi GOS
Holukeppni GOS hefst 26.janúar
Skráning líkur 23.janúar eða þegar mótstjórn lokar fyrir skráningu þegar hámarksfjölda er náð ( 32 leikmenn)
26.jan – 2.febrúar 32 manna úrslit, völlur Taiheiyo club Gotemba course
2 – 9. febrúar 16 manna úrslit, völlur PGA National
9 – 16. febrúar 8 manna úrslit, völlur St Andrews Old Course
16 – 23. febrúar undanúrslit, völlur Muirfield Village
23.feb – 1.mars úrslitaleikur og leikur um 3 sæti, völlur Royal Birkdale
Reglur fyrir holukeppni
1. Mótið hefst með holukeppni í kjölfar úrdráttar á meðal skráðra keppenda
2. Miðað skal við að leikið sé í Oddaflugsformi þar sem að hámarki 32 keppendur leika í hverri sjálfstæðri umferð en mótstjórn er heimilt að bæta við umferðum, fjölga þátttakendum í umferð eða fækka þeim.
Í upphafi leiks skulu keppendur dregnir saman af handahófi.
3. Leikmenn spila á sinn grunnforgjöf að hámarki 24
Dæmi: Gunni er með 2,4 fær því 2 og Bjarki er með 11,5 og fær því 12. Bjarki fær því 10 högg í forgjöf á Gunna..
En tölvan reiknar það sjálfkrafa.
4. Þegar farið er inn í kerfið skal valið matchplay í settings og setjið nöfn leikmanna og forgjöf.
5. Í hverri umferð í holukeppninni með forgjöf eru leiknar 18 holur. Leikið skal til úrslita í hverjum leik. Verði leikmenn jafnir eftir 18 holu leik skal leikið áfram og fyrsta unnin hola ræður úrslitum.
6. Hámarksforgjöf er 24
7. Teigar:
Karlar leika á gulum teigum sem eru members tees
Konur leika á rauðum teigum sem er ladys tees
67 ára og eldri leika á rauðum teigum sem er ladys tees
Skrifið úrslit á töflu sem er stödd við kaffistofu.
Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin.
1.sæti: 10 tímakort í golfhermi
2. sæti 5 tímakort í golfhermi
3. sæti 3 tímar í golfhermi GOS
Skráning: Sendið póst á Hlyn hlynur@gosgolf.is fyrir 23.janúar
Mótstjórn: Hlynur Geir, Bjarki Þór og Gunnar Marel
Þátttökugjald 1000 kr. greiðið í posa
Keppendur skrá sig í golfhermin og greiða tíman í posa eða gata kort.